Vorslátrun 27. og 28. mars
22.02.2012 - Lestrar 467
Vorslátrun Norðlenska verður á Höfn þriðjudaginn 27. mars, eins og kom fram hér í gær, og nú hefur
verið ákveðið að slátrað verði norðanlands degi síðar. Athygli er vakin á því að samkvæmt reglugerð frá
hausti 2010, verða hrútlömb að vera gelt í síðasta lagi 2 mánuðum fyrir slátrun til að teljast til lamba.
Þeir sem hafa hug á að koma með fé til slátrunar eru vinsamlega beðnir að hafa samband
við Svölu í síma 460-8855 eða Einar á Höfn í síma 840-8870.