Fréttir

Vorslátrun á Höfn og Akureyri

Vorslátrun Norðlenska verður á Höfn þriðjudaginn 29. mars og á Akureyri fimmtudaginn 7. apríl. Verð mun hækka frá síðasta hausti.

Verð lamba mun hækka um 10% og verð fyrir fullorðið um 100% frá því sem var greitt í viku 40 haustið 2010.

Athygli er vakin á því að samkvæmt nýrri reglugerð verða hrútlömb að vera gelt til að teljast til lamba.

Þeir sem hafa hug á að koma með fé til slátrunar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Svölu í síma 460-8855 eða Einar á Höfn í síma 840-8870.

 


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook