Fréttir

Allt á fullu fyrir grilltímabilið

„Hér er allt á fullu  við að koma grillkjötsframleiðslu í full afköst enda frábær veðurspá fyrir þessa fyrstu stóru ferðahelgi sumarsins,“ segir Ingvar Gíslason markaðsstjóri Norðlenska.

„Áherslur okkar verða þær sömu í grillkjötinu og síðastliðin sumur.  Að framleiða gæða vörur sem neytendur geta verið vissir um að standist væntingar þeirra. Í Salt og pipar-lærissneiðarnar okkar eru t.d. aðeins notaðar 1. flokks miðlærissneiðar og engum aukaefnum er sprautað í grillsneiðar okkar, hvort sem um er að ræða grísakjöt eða lambakjöt,“ segir Ingvar.

Hann er bjartsýnn á sumarið: Við erum að reikna með að landsmenn verði sólgnir í hamborgara og pylsur þetta sumarið og það má reikna með nýjungum frá okkur á næstu vikum,“ segir Ingvar Gíslason.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook