Nýjustu fréttir

Norðlenska styrkir færeyskt björgunarfélag

Frá afhendingu styrksins í gær.

Norðlenska hefur lengi átt farsæl viðskipti við Færeyinga og eftir að fárviðri gekk yfir eyjarnar í haust kviknaði sú hugmynd að rétta frændum okkar hjálparhönd með einhverjum hætti. Úr varð að Norðlenska ákvað að færa björgunarfélagi í Færeyjum andvirði um 200.000 króna að gjöf og afhenti Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, gjöfina í gær.

Lesa meira

Mikið sungið á Húsavík

Einn gesta gærdagsins hjá Norðlenska á Húsavík.

Hefð er orðin fyrir því að börn komi í Norðlenska á Húsavík á öskudaginn, syngi fyrir starfsfólk og fái pylsu og Svala að launum. Þetta árið komu um 220 börn í heimsókn í fjölbreyttum búningum og tóku lagið, viðstöddum til mikillar ánægju.

Lesa meira

Furðuverur sólgnar í Goða pylsur


Fjöld skrautlegra gesta hefur staldrað við hjá Norðlenska í morgun, tekið lagið fyrir starfsmenn og þegið góðgæti að launum, gómsætar Goða pylsur með tilheyrandi meðlæti, og drykk. Búningar voru skrautlegir og skemmtilegir sem fyrr.

Lesa meira

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook