Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
Vefverslun Norðlenska tekin í notkun
17.02.2004 - Lestrar 168
Norðlenska hefur tekið í notkun vefverslun. Með þessu er komið til móts við viðskiptavini fyrirtækisins þar sem gefinn er kostur á því að panta vörur hvenær sólahringsins sem er. Viðskiptavinir Norðlenska geta nálgast lykilorð sín með því að senda tölvupóst á netverslun@nordlenska.is . Vefverslunin heldur utan um eldri pantanir viðskiptavina Norðlenska ásamt því að á vefverslun er alltaf hægt að nálgast glæsileg tilboð.
Lesa meira
Afurðaverð á Svínum hækkar
10.02.2004 - Lestrar 55
Svínaverð mun hækka mánudaginn 16 febrúar. Svínaverð hafa farið hækkandi undanfarna mánuði og mun innleggjendaverð á Grís 1A fara í 200 krónur. Heldur hefur dregið úr framleiðslu bænda á grísum að undanförnu og er að komast jafnvægi á framleiðsluna, verðhækkunin nú er í beinu framhaldi af því.
Lesa meira
Fréttir frá Norðlenska
09.02.2004 - Lestrar 71
Ráðist hefur verið í umfangsmiklar breytingar í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík. Framkvæmdir við endurnýjun á gólfi á sláturlínu eru hafnar. Til stendur að endurnýja gólfið samkvæmt nýjustu stöðlum, meðal annars verður nýtt kvarsgólfefni lagt á gólfin og vel upp á veggi.
Lesa meira