Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
Goðamót Þórs - Frábær skemmtun
01.03.2004 - Lestrar 52
Um helgina fór fram Goðamót Þórs í 3-5 aldursflokki stúlkna. Mótið er það fyrsta af þremur sem haldið er í samvinnu við Þór og með stuðningi Norðlenska. Mótið þótti takast afburða vel og skemmtu allir sér frábærlega. Þátttakendur fengu allir gjafir frá Norðlenska, Goða pylsur, áleggsbréf og Áfram Ísland trefil.
Lesa meira
Goðasigur í PYLSUSLAGNUM
28.02.2004 - Lestrar 50
Handknattleikslið KA er bikarmeistari í handknattleik eftir sigur á Fram í úrslitaleiknum í dag. Norðlenska er einn af aðalstyrktaraðilum KA og óskar félaginu til hamingju með titilinn. Árangurinn er einnig sérlega ánægjulegur fyrir Norðlenska, því þessi slagur var af gárungunum nefndur pylsuslagurinn þar sem Goði mætti sínum helsta samkeppnisaðila. Til hamingju KA-menn!
Lesa meira
Börnin gæða sér á Goða pylsum á Öskudegi
25.02.2004 - Lestrar 50
Fjöldinn allur af börnum hefur lagt leið sína til Norðlenska þennan morguninn og tekið lagið fyrir starfsmenn fyrirtækisins. Börnin fara södd og glöð í burtu eftir að hafa gætt sér á gómsætum Goða pylsum.
Á myndasíðunni má finna fleiri myndir sem teknar voru á öskudeginum.
Lesa meira