Nýjustu fréttir

Sauðfjárslátrun á Húsavík hefur gengið einstaklega vel

Vandað til verka
Sauðfjárslátrun hjá Norðlenska á Húsavík hefur gengið sérlega vel það sem af er, að sögn Sigmundar Hreiðarssonar, vinnslustjóra fyrirtækisins á Húsavík. Afköst hafa verið mjög góð í sláturtíðinni og gæði hafa aldrei verið meiri. Gallaprósenta hefur legið nálægt 1%, sem að sögn Sigmundar er ótrúlega góður árangur. Hin svokallaða haustslátrun hófst á Húsavík þann 22. ágúst sl. og síðan hefur verið slátrað alla virka daga. Að meðaltali hefur verið slátrað um 2.000 dilkum á dag, en gert hafði verið ráð fyrir að slátrað yrði um 1.950 dilkum á dag. Þann 5. október sl. var sett nýtt met hjá Norðlenska, því á Húsavík var slátrað 2.235 dilkum og þann sama dag var slátrað 1.104 dilkum á Höfn og í það heila var því 3.339 dilkum slátrað hjá Norðlenska þennan dag. Þetta hefur gengið alveg framúrskarandi vel og því þakka ég einstaklega samhentu starfsliði og góðri verkstjórn. Það leggjast hér allir á eitt um að hlutirnir gangi vel og vinnuandinn er alveg einstakur. Í sláturtíðinni eru um 85 Íslendingar starfandi hér í húsinu og um 50 erlendir starfsmenn af tíu þjóðernum frá Bretlandi, Nýja-Sjálandi, Grænlandi, Finnlandi, Svíþjóð, Hollandi, Thailandi, Slóvakíu, Póllandi og Slóveníu. Þetta samstarf fólks af ólíkum uppruna hefur gengið framúrskarandi vel. Sumir þessara starfsmanna hafa verið hér áður í sláturtíð og nú þegar höfum við fengið óskir mörgum starfsmönnum um að fá að koma hér að ári. Um síðustu helgi var efnt til hópferðar með útlendingana í nágrannasveitir m.a. Mývatnssveit og Laxárvirkjun og síðan var grillað eftir að búið var að fara í Baðlónið í Mývatnssveit. Þetta tókst í alla staði mjög vel og útlendingarnir lýstu mikilli ánægju með þetta, segir Sigmundur.
Lesa meira

Veruleg aukning í slátrun Norðlenska á Höfn


Reiknað er með að slátra á bilinu 33-34 þúsund fjár hjá Norðlenska á Höfn, sem er fjölgun um sem næst 10 þúsund fjár frá síðustu sláturtíð. Haustslátrun hófst á Höfn þann 12. september sl. og síðan hefur verið slátrað alla virka daga. Núna um helgina verðum við búnir að slátra um 18.500 fjár, en við reiknum með að ljúka slátrun eftir þrjár vikur 28. október, segir Einar Karlsson, sláturhússtjóri á Höfn. Fé úr Berufirði er nú flutt til slátrunar á Höfn, en í fyrra var fé af því svæði slátrað hjá Norðlenska á Húsavík. Þá eru um sex þúsund fjár úr frá nítján bændum í Vestur-Skaftafellssýslu - að stærstum hluta úr Skaftárhreppi og allt vestur í Álftaver - slátrað núna á Höfn, sem ekki var áður. Við höfum fengið fyrirspurnir um slátrun víðar að t.d. úr Landssveitinni og við leggjum áherslu á að verða við öllum þessum óskum, segir Einar og hvetur menn til þess að hafa samband við sig í síma 840 8870 vilji þeir leita eftir slátrun í haust. Að jafnaði er slátrað um 1000 fjár á dag, en afköstin hafa farið mest upp í um 1100 dilka á dag. Á bilinu 40-45 manns starfa hjá Norðlenska á Höfn í sláturtíðinni þar af er um helmingur útlendingar frá Svíþjóð, Tékklandi, Bretlandi, Póllandi, Slóveníu og Þýskalandi. Ég hef ekki nákvæmar tölur yfir fallþunga, en mín tilfinning er að hann sé eilítið minni en í fyrra, segir Einar og telur að óvenju kalt vor sé meginskýringin.
Lesa meira

Breyttir tímar

Skemmtilegur hópur
Góður hópur fólks af Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík kom í heimsókn til Norðlenska á Húsavík á dögunum. Þau skoðuðu m.a. sláturhúsið og kjötvinnsluna, margir höfðu orði á því hversu mikil tækniþróun hafi átt sér stað og að mikið hafi breyst síðan að þau unnu í húsinu. Að sögn Sigmundar stöðvastjóra var sérlega skemmtilegt var að fá svo áhugasama gesti í heimsókn og þakkar Norðlenska þeim fyrir komuna.
Lesa meira

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook