Nýjustu fréttir

Verðhækkun á nautagripum

Í vikunni mun Norðlenska hækka verð á nautgripum til jafns við aðra sláturleyfishafa. Verðskráin tekur gildi frá og með 11. desember og verður birt hér á vefsíðunni undir bændur, afurðaverð (einnig hægt að smella hér) síðar í vikunni. Um leið eru bændur hvattir til að skrá sláturgripi í síma 460-8800.
Lesa meira

Norðlenska afhendir Líknarsjóði Lionsklúbbs Hornafjarðar peningagjöf

Í stað þess að senda út jólakort hefur Norðlenska undanfarin ár styrkt félagasamtök með fjárframlögum á aðventunni. Svo er einnig í ár. Í dag, 13. desember, afhenti Reynir B. Eiríksson, framleiðslustjóri Norðlenska, forráðamönnum Líknarsjóðs Lionsklúbbs Hornafjarðar 100 þúsund króna peningagjöf frá fyrirtækinu. Afhending peningagjafarinnar fór fram á Höfn.

Lesa meira

Hagnaður fyrstu tíu mánuði ársins umfram væntingar

Hagnaður af rekstri Norðlenska eftir fyrstu tíu mánuði ársins er umfram væntingar. Vörusalan fyrstu tíu mánuðina er um 2,4 milljarðar króna, en var um 2,5 milljarðar króna allt árið 2005. Þessar upplýsingar koma fram í fréttabréfi Norðlenska og Búsældar sem var dreift síðastliðin föstudag.

Í frétt um afkomu Norðlenska segir orðrétt: “Góður rekstur hefur gert mögulegt að lækka skuldir um 120 milljónir og eiginfjárhlutfall hefur hækkað úr 16,0% um síðustu áramót í 19,1% um síðustu mánaðamót. Góðar rekstrarhorfur eru fyrir síðustu tvo mánuði ársins, hráefnastaða fyrirtækisins er góð og spurn eftir mikið unnum kjötvörum sífellt vaxandi.”

Lesa meira

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook